Notum menntamilljarðana núna

Það er slaki í viðskiptalífinu og sannarlega blikur á lofti. Við erum í besta falli í miðri ánni og sjáum ekki til lands. ,,Það hvessir, það rignir, en það að styttir alltaf upp og lygnir“ söng meistarinn Raggi Bjarna. Við skulum trúa því og hefjast strax handa við að undirbúa uppbygginguna.

Milljarðar í starfsmenntasjóðum

Í dag horfir fólk og fyrirtæki til ríkissjóðs og hvaða stuðnings sé að vænta. En það eru fleiri sjóðir sem eru sterkir og hafa hlutverki að gegna. Með kjarasamningum árið 2000 var stigið heillaskref í þágu starfsmenntunar með stofnun starfsmenntasjóða. Í 20 ár hefur atvinnulífið og hið opinbera lagt fjármagn í þessa sjóði sem hafa það hlutverk að auka færni starfsmanna og auka þannig framleiðni fyrirtækja og stofnana. Margir þessara sjóða eru sterkir og kerfið í heild telur milljarða.

Í starfi mínu sem ráðgjafi hjá Dale Carnegie hef ég tekið eftir tvennu. Í fyrsta lagi er stór hluti fólks sem gerir sér ekki grein fyrir réttindum sínum og það sama á við um fyrirtæki sem einnig geta sótt í sjóðina. Í öðru lagi eru það svo reglur sjóðanna um úthlutanir sem oft eru flóknar við fyrstu sýn. Þetta tvennt gerir það að verkum að stundum meira rennur inn í sjóðina en út úr þeim.

Kampavínsvísitalan og endurmenntun

Á árunum eftir hrun 2009 til 2013 tvöfaldaðist velta Dale Carnegie en sala á kampavíni drógst saman um 70% frá árinu 2007 til 2010. Á kaffistofunni okkar hefur til gamans verið sett fram hagfræðikenningin um víxlverkun kampavíns og endurmenntunar. Áföll fá okkur til að staldra við, horfa inn á við og endurmeta gildi okkar. Við spyrjum okkur hvort við séum á réttri leið og hvert við viljum stefna. Undanfarna daga hafa hundruð Íslendinga sótt sér efni á heimasíðu okkar og mörg ár eru síðan að við höfum skynjað annan eins áhuga.

Hefjumst handa

Einhversstaðar stendur að nóttin sé alltaf dimmust rétt fyrir dögun. Fyrr en varir mun sólin rísa og þá skiptir öllu að hafa áætlun og vera í þjálfun. Ég skora á stjórnendur starfsmenntasjóðanna að útvíkka úthlutunarreglur og byggja þannig upp fólk og fyrirtæki. Viðskiptalífið þarf á margskonar aðgerðum að halda, líka í menntamálum. Ég skora líka á allt launafólk að hafa samband við sinn starfsmenntasjóð eða stéttarfélag og skoða sína inneign. Stjórnendur fyrirtækja ættu einnig að kanna hvaða möguleikar bjóðast sínum fyrirtækjum og hefjast handa við að smíða þjálfunaráætlanir.

,,Gerum það sem við getum, með það sem við höfum, þar sem við erum.“ Þessi orð Theodore Roosevelt Bandaríkjaforseta eiga vel við. Hefjum undirbúninginn.