Markþjálfun fyrir
13 ára og eldri
Generation Next
Markþjálfun hjálpar ungu fólki að styrkja sjálfstraustið og trúa meira á sjálfa sig og eigin getur á tímum sem samanburður og kröfur eru miklar. Í markþjálfun gefst tækifæri til að staldra aðeins við, kynnast sjálfum sér betur, átta sig á eigin styrkleikum og hvað þarf til að líða betur og ná áfangasigrum.
Áskoranir eru ólíkar. Viltu æfa þig í að tala fyrir framan aðra, halda flotta kynningu í skólanum eða standa örugg/ur upp og halda ræðu í fermingunni? Viltu ná meiri árangri í íþróttinni sem þú stundar, treysta þér betur í keppni eða læra að takast á við pressu? Viltu geta svarað fyrir sjálfa/n þig, sett mörk eða staðið með sjálfum þér í samskiptum við aðra? Í markþjálfun þjálfum við hugann í þá átt sem þú vilt að hann fari. Við vinnum með hugsanir, viðhorf og markmið svo þú getir mætt aðstæðum af meira öryggi, ró og sjálfstrausti, bæði í skóla, íþróttum og daglegu lífi.
Fyrir hverja
Markþjálfunin er fyrir ungt fólk 13 ára og eldra sem vilja: líða betur og hafa meira gaman styrkja sjálfstraust og hugrekki læra að standa með sjálfum sér setja sér markmið og vinna að þeim taka frumkvæði og vera leiðtogi í eigin lífi
Það sem við gerum í tímunum
Í markþjálfuninni er unnið út frá einstaklinginum sjálfum og því sem viðkomandi vill styrkja. Markþjálfinn spyr spurninga, hlustar og hjálpar unglingnum að sjá hlutina skýrar og út frá fleiri sjónarhornum. Tímarnir byggja á samtölum og einföldum æfingum sem styðja við að finna lausnir, taka ákvarðanir og efla traust á sjálfum sér. Markþjálfunin snýst um það sem unglingurinn vill vinna með á sínum hraða og á sínum forsendum.
Leikreglur
Markþjálfunin er ætluð ungmennum 13 ára og eldri og miðar að því að styðja við persónulegan þroska, sjálfstraust, félagslega færni og önnur tengd atriði skv. samkomulagi. Markþjálfun fer fram með vilja og samþykki ungmennisins og byggir á virkri þátttöku þess. Markþjálfun fer fram í gegnum rafrænan samskiptamiðil t.d. Teams og er hver tími 50 mínútur. Foreldrar bera ábyrgð á að ungmenni hafi aðgang að nauðsynlegri tækni, stöðugri nettengingu og næði meðan á tímum stendur. Upptökur af markþjálfunartímum eru óheimilar, hvort sem er af hálfu markþjálfa, ungmennis eða forráðamanns.. Markþjálfun telst ekki til sálfræðimeðferðar, heilbrigðisþjónustu eða klínískrar íhlutunar og kemur ekki í stað þjónustu sálfræðinga, geðlækna eða annarra heilbrigðisstarfsmanna. Markþjálfi greinir ekki né meðhöndlar geðraskanir. Markþjálfi er bundinn trúnaði um þær upplýsingar sem fram koma í markþjálfunartímum. Forráðamanni er veitt almennt yfirlit um framvindu markþjálfunar, svo sem mætingu, áherslur og markmið, en ekki efni einstakra samtala nema með samþykki ungmennisins. Trúnaður gildir ekki ef upplýsingar koma fram er varða við lög.
Skipulag
Tímarnir fara fram á Teams og eru 50 mínútur í senn. Tímasetningar eru sveigjanlegar og ákveðnar í sameiningu við markþjálfa og í samráði við unglinginn. Afbóka þarf tíma með að lágmarki 24 klst. fyrirvara, ella telst tíminn nýttur nema um gild veikindi sé að ræða
Hagnýtar upplýsingar
Athugið að í sumum tilfellum er hægt að nýta frístundastyrk eða styrki stéttarfélaga.
Verð
19.900 kr. á tíma
Ef 3 eða fleiri tímar eru keyptir í einu er veittur 10% afsláttur.