Dale á milli starfa

Námskeið fyrir atvinnuleitendur

Sérsniðið Dale Carnegie námskeið fyrir þá sem eru á milli starfa og í atvinnuleit. Settu eldmóð í atvinnuleitina, virkjaðu styrkleikana þína og stækkaðu tengslanetið.

Markmið námskeiðsins eru:

  • Efla sjálfstraust og auka eldmóð til að setja kraft í atvinnuleit, leita nýrra tækifæra og vinna með styrkleika sína.
  • Stækka tengslanetið til að styrkja fagleg tengsl og byggja upp ný sambönd
  • Auka tjáningarhæfni til að skapa jákvæð áhrif og koma faglega fyrir og af öryggi í mismunandi aðstæðum.
  • Bæta viðhorf, minnka kvíða og stjórna streitu í krefjandi aðstæðum og undir álagi.
  • Gerð ferilskráar og styrkja ásýnd á samfélagsmiðlum til að auka trúverðugleika og leggja áherslu á styrkleika.

Skráðu þig í ókeypis kynningartíma

Skoða dagsetningar og staðsetningar
Discount

75% niðurgreitt af VMST

Námskeiðið er hannað í samvinnu við VMST sem styrkir sína viðskiptavini um 75% af verðinu. Flest stéttarfélög greiða svo niður stærstan hluta af því sem eftir er.

Umsókn til VMST
Person standing next to flag

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem eru á milli starfa og vilja setja kraft í atvinnuleit. Námskeiðið er sérsniðið og byggir á Dale Carnegie námskeiðinu sívinsæla.

Open book

Það sem við förum yfir á námskeiðinu

  • Gerð framtíðarsýnar og hnitmiðuð markmiðasetning að stefna að næstu 3-6 mánuði.
  • Setjum eldmóð í þau verkefni sem hafa áhrif á árangur okkar
  • Tökum styrkleikaprófið til að koma auga á styrkleika sem nýtast okkur þegar á móti blæs og á hvaða sviðum við viljum bæta okkur
  • Gerum ferilskrá með áherslu á styrkleika og bætum ásýnd á samfélagsmiðlum
  • Stækkum tengslanetið og kortleggjum lykilsambönd
  • Lærum reglur í mannlegum samskiptum og skuldbindum okkur til að beita þeim til að opna fyrir ný sambönd
  • Aukum trúverðugleika í tjáningu með því að þekkja hvernig styrkleikar okkar nýtast og hvernig við komum okkar persónulega vörumerki á framfæri
  • Viðhöldum jákvæðu viðhorfi og stjórnum áhyggjum og kvíða
  • Stækkum þægindahringinn til að auka kjark og þor og vera sveigjanlegri
  • Komum auga á árangur af því að sýna eldmóð, bæta samskipti og veitum öðrum innblástur og hvatningu.
Open book

Skipulag

Staðbundin þjálfun: Námskeiðið er haldið með þátttakendum í fundarsal í 6 skipti, tvo og hálfan tíma í senn.

Live Online þjálfun: Námskeiðið er haldið Live Online á netinu, 6 skipti, í tvo og hálfan tíma í senn. Áður en námskeiðið hefst sendum við þér slóð sem þú smellir á og þá opnast þjálfunarumhverfið. Á okkar námskeiðum eru alltaf tveir þjálfarar og annar þeirra er tæknimaður, þér til aðstoðar allan tímann. Á nokkrum mínútum kennum við þér á kerfið og eftir það tekur þú virkan þátt. Einfalt, skemmtilegt og árangursríkt.

Open book

Innifalið

Handbók, millifundir, Gullna reglubókin, 30 daga aðgangur að Storytel þar sem þú getur hlustað á bókina How to win friends and influence people eftir Dale Carnegie á ensku, útskriftarskírteini frá Dale Carnegie & Associates. Persónulegur aðgangur að þjálfara meðan á námskeiðinu stendur.

Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið er sérhannað fyrir þá sem eru á milli starfa. Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjaldinu hjá Vinnumálastofnun.

Trainer

Hvað segja þátttakendur eftir námskeiðið

  • 90% hafa aukið sjálfstraust sitt, eru bjartsýnni, sjá fleiri tækifæri, hafa bætt ferilskrá sína og eru virkari í atvinnuleitinni
  • 80% þekkja betur styrkleika sína og líður betur
  • NPS skorið er 92% (á skala sem er mínus hundra til plús hundrað)
Person standing next to flag

Verð

80.000 kr. *

*Atvinnuleitendur geta fengið styrk að upphæð 60.000 kr. hjá Vinnumálastofnun og fullan styrk hjá VIRK.
Stéttarfélög niðurgreiða hlutinn sem eftir stendur og sum 100%.

Umsókn til VMST

Næstu námskeið hefjast

Smelltu á Skráning til að sjá allar dagsetningar námskeiðsins.

Engar komandi dagsetningar

“Ég er áræðnari og öruggari með mig sem gerði það að verkum að ég mætti sjálfsörugg og jákvæð á vinnustaðinn með kynningarbréf og ferilskrá til að láta sjá mig. Ef ég hefði ekki gert það hefði ég aldrei fengið atvinnuviðtal þar sem yfir 400 umsóknir bárust og komist í viðtal númer tvö þar sem valið stóð á milli mín og eins annars umsækjanda. Ég fékk ekki starfið en gerði það sama þegar ég sótti um draumastarfið sem ég fékk. Ég lét sjá mig, sjálfsörugga, brosmilda og jákvæða. Það er fátt annað sem selur betur.”