Tölum um gildi

Tölum um gildi

Það er auðvelt að láta berast með straumnum og eyða miklum tíma í að lesa fyrirsagnir og fletta samfélagsmiðlum. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að straumurinn beri okkur þangað sem við viljum fara eða vera.

Í upphafi hvers árs er gott tækifæri til að huga að eigin velferð og ef til vill leiðrétta kúrsinn ef okkur hefur borið af leið. Gildi virka sem innri áttaviti en þau eru grundvallarviðhorf sem stýra hegðun okkar og hugarfari. Þau hjálpa okkur að ákveða hvað er mikilvægt og lýsa því hvers konar manneskja við viljum vera; hvernig við komum fram við okkur sjálf og aðra og samskipti okkar við heiminn í kringum okkur.

Hvernig ákveður maður gildi?

Þegar við ákveðum gildin okkar er snjallt að velja nokkur grundvallar gildi sem eru ófrávíkjanleg í okkar huga og við myndum ekki gera málamiðlanir um. Við getum líka notað gildi sem stefnumótandi hugmyndafræði og valið gildi sem við höfum ekki í dag en langar að lifa eftir. Ein leið til að finna mikilvægustu gildin er að klippa niður blað í t.d. 20 miða og skrifa eitt gildi á hvern miða. Fækka svo gildunum fyrst um helming og svo aftur um helming þannig að 5 gildi standi eftir. Þú getur síðan raðað þeim í mikilvægisröð. Til að fá hugmyndir af gildum getur þú farið á dale.is eða gúgglað.

Uppruni gilda

Gildin okkar tengjast flest; menningu, trú, stjórnmálaskoðunum, menntun, starfi okkar, reynslu eða uppeldi. Á mínu æskuheimili var ekki formlega sest niður til að ræða gildi en engu að síður var það kýr-skýrt hvaða gildi voru í hávegum höfð. Ég get nefnt gildi eins og; frændrækni, dugnaður, heilindi, ráðdeild og hjálpsemi. Enginn afsláttur var veittur af þessum gildum.

Árekstur gilda

Forgangsröðun gilda getur orsakað árekstra í samskiptum og getur búið til ólíka sýn á aðstæður. Tökum dæmi: Tveir aðilar vinna hjá sama fyrirtæki og annar aðilinn setur gildið heiðarleika í fyrsta sæti en hinn hollustu. Upp kemur staða þar sem þeir verða áskynja að yfirmaður þeirra viðhefur ósiðlegt athæfi. Sá aðili sem hefur heiðarleika í fyrsta sæti hefur ríka þörf fyrir að láta vita af hegðun yfirmannsins á meðan hinn tekur hollustu við yfirmanninn framyfir.

Ungt fólk hefur áhuga á gildum

Svo árum skiptir höfum við hjá Dale Carnegie farið í skóla og félagsmiðstöðvar og rætt um gildi við ungt fólk. Við höfum prentað rifgataðar arkir með 30 gildum sem við gefum krökkunum sem flokka og forgangsraða gildum og nota útilokunaraðferðina til að finna þau gildi sem þau tengja mest við. Oft er þetta í fyrsta sinn sem þau heyra um hugtakið en það dregur ekki úr áhuganum. Þau fara síðan með gilda-spjöldin heim og í kjölfarið fáum við hrós og þakkir frá foreldrum fyrir framtakið.

Nú í upphafi ársins skora ég á þig lesandi góður að gefa þér nokkrar mínútur til að hugleiða gildin þín og hvernig manneskja þú vilt vera í nútíð og framtíð.

Gleðilegt ár.