Dale fyrir 10-12 ára

Generation Next

Núna er tíminn til þess að styrkja sjálfsmyndina og byggja upp sterkt sjálfsöryggi inn í unglingsárin!

Á þessu skemmtilega námskeiði leggjum við sterkan grunn að góðu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd. Við leggjum áherslu á að börnin læri að þekkja sína styrkleika og efli trú á eigin hæfileika. Félagsleg samskipti eru mikilvægur hluti af þroskaferlinu og við æfum okkur í að verða betri í samskiptum við aðra. Lærum hvernig við getum eignast nýja vini og ræktað vinasambönd. Við æfum okkur í því að fara út fyrir þægindahringinn við hvert tækifæri og eflum hugrekkið okkar þannig að við getum tekist á við þær áskoranir sem við mætum í lífinu með jákvæðu viðhorfi.

Skráðu þig í ókeypis kynningartíma

Skoða dagsetningar og staðsetningar
Person standing next to flag

Fyrir hverja

Þetta er fyrir krakka í 5. til 7. bekk sem að vilja vera leiðtogar í eigin lífi, sýna hvað í þeim býr, auka hugrekki og líða almennt betur í eigin skinni.

Open book

Það sem við förum yfir

  • Gerum skemmtilegar æfingar sem auka sjálfstraust
  • Æfum okkur að þora að byrja samtal við þá sem við þekkjum ekki til að eignast nýja vini
  • Förum í leiki og vinnum í skapandi verkefni í tengslum við jákvæð samskipti
  • Skoðum virði þess að vera duglegri við að leggja okkur fram
  • Lærum aðferðir sem hjálpa okkur að vera jákvæðari
  • Þjálfum okkur í að tala fyrir framan hóp
Open book

Skipulag

Haust- og vetrarnámskeið eru 9 skipti yfir 10 vikna tímabil, einu sinni í viku. 8 skipti í 3 klst. og tveimur vikum síðar er svo endurkomutími, sem er 1,5 klst.

Sumarnámskeiðið er í 8 daga í röð, 4 klst. í senn.

Open book

Innifalið

Verkefnabók og skriffæri, Gullna reglubókin, Útskriftarskírteini frá Dale Carnegie & Associates. Persónulegur aðgangur að þjálfara.

Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Athugið að í flestum tilfellum er hægt að nýta frístundastyrk.

Person standing next to flag

Verð

75.000

Vitnisburður úr nafnlausu gæðamati
“VÁ hvað þetta var skemmtilegt námskeið! Allt öðruvísi en ég hélt. Ég eignaðist góða vini og núna er miklu auðveldara að tala við allskonar fólk og segja hvað mér finnst. Allt í einu er kvíðinn líka miklu minni því ég veit ég má gera mistök.”