Markmiðasetning – Gerðu þetta þrennt

Nýju ári verður sannarlega fagnað eftir allt sem á undan er gengið. Góðar fréttir af bóluefni gefa okkur von um betri tíð. En hvernig viljum við að næsta ár verði? Hvaða markmiðum viljum við ná? Eitt af því sem við hjá Dale Carnegie gerum allt árið um kring er að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum. 

Hér eru þrjú atriði sem gott er að hafa í huga við markmiðasetningu:

  1. Jafnvægi. Það er freistandi að setja sér bara eitt metnaðarfullt markmið á næsta ári og ná því. Þá gæti skapast hætta á að við vanrækjum önnur svið. Á dale.is höfum við útbúið sjálfsmat þar sem þú leggur mat á öll helstu árangurssvið þín – skoðaðu hér.
  2. Notaðu SMART formúluna (Sértækt, Mælanlegt, Aðlaðandi, Raunhæft og Tímasett). Hafðu markmiðið sértækt. Ef þú ætlar t.d. að hreyfa þig ákveddu þig þá hvernig. Til að meta árangur þurfa markmið að vera mælanleg sb. mínútur á dag eða ákveðin vegalengd osfrv. Við skorum líka á fólk að setja sér aðlaðandi markmið. Markmið sem þú vilt ná en ert ekki að gera fyrir einhvern annan. Við þurfum svo líka að vera raunhæf. Það væri vissulega gaman að komast á Ólympíuleikana 2021 en kannski er raunhæfara fyrir okkur flest að setja markið aðeins neðar. Að lokum þurfum við svo að ákveða tímamörkin og ákveða dagsetningu. Við mælum alltaf með að skrifa markmiðin niður, sem eykur líkurnar á að við náum þeim um 40%, og stundum er gott að segja öðrum frá þeim. Það eykur skuldbindingu okkar.
  3. Verðlaunum okkur. Við þurfum hvattningu til að ná markmiðum okkar. Um leið og markmið geta aukið metnað okkar og lífsfyllingu eiga þau líka að vera skemmtileg. Það er enginn kvóti á sjálfshvatningu og verðlaunum. Fögnum hverri framför og höldum upp á áfangasigra. Njótum ferðalagsins.

Ef þú vilt fleiri ráð getur þú heyrt í ráðgjöfum okkar og sent okkur fyrirspurn hér – það kostar ekkert. Okkar er ánægjan.

Taktu sjálfsmatið