Greining, ráðgjöf og þjálfun
Þar sem ekkert fyrirtæki er eins eru þarfirnar ólíkar. Þess vegna sérsníðum við alltaf fyrirtækjalausnir. Sjáðu hvernig við nálgumst verkefnið.
BID, Business Improvement Discussion er þaulreynd aðferð til að kortleggja umbætur og tækifæri teymum.
Ein af áskorunum stjórnandans er að hann stendur oft og tíðum einn í þeim skilningi að allir í kringum hann hafa sína hagsmuni.
Markþjálfun sem byggir á gildum Dale Carnegie og innifelur árangursmiðað og kerfisbundið samtal. Þú ræður umræðuefninu og við spyrjum spurninga sem opna á hugmyndir og svör.
Teymismarkþjálfun hjálpar til við að; sameinast um sameiginlegan tilgang, styrkir menninguna innan hópsins, eykur afköst og eldmóð og tryggir að hver og einn skilji sitt hlutverk í hópnum.
Matstæki sem skapa nýja vídd í endurgjöf og hvetja einstaklinga til að brúa bilið frá núverandi stöðu til háleitari markmiða. .
Aðferð til að meta og forgangsraða hæfnisþáttum hjá skipulagsheildum með tilliti til markmiða og árangur.
Guðlaugur Kristmundsson
Rebekka Rún Jóhannesdóttir
Rebekka er rekstrarverkfræðingur og starfar sem yfirverkefnastjóri hjá Deloitte í rekstrarráðgjöf. Hún hefur réttindi til að þjálfa Dale Carnegie grunnnámskeið bæði fyrir fullorðna einstaklinga og ungt fólk. Hún er með digital réttindi og réttindi til að þjálfa námskeið í Áhrifaríkum kynningum. Rebekka heldur einnig vinnustofur og fyrirlestra í fyrirtækjum.
Jón JósafatBjörnsson
Jósafat hefur 25 ára reynslu sem stjórnandi og er framkvæmdastjóri Dale Carnegie og viðskiptaráðgjafi. Hann greinir þjálfunarlausnir og vinnur náið með stjórnendum í aðdraganda þjálfunarverkefna og eftirfylgni. Hann leiðir markaðsvinnu fyrirtækisins ásamt öðrum hefðbundum stjórnendaverkefnum.
PálaÞórisdóttir
Pála er reynslumikill stjórnandi úr fjölbreyttum atvinnugreinum svo sem tryggingum, fjármálum, flutningum og þjónustu. Hún er í fullu starfi hjá Dale Carnegie og hefur réttindi til að þjálfa grunnnámskeiðið, stjórnendaþjálfun, sölu- og þjónustuþjálfun og sérsniðnar lausnir auk þess sem hún er digital trainer með fjölda þjálfunartíma á netinu. Pála er einnig viðskiptastjóri og stjórnendamarkþjálfi.
UnnurMagnúsdóttir
Unnur er með yfir 20 ára reynslu sem þjálfari og ráðgjafi og hefur komið að greiningarvinnu og þjálfun stjórnenda og starfsfólks margra stærstu fyrirtækja landsins. Hún hefur réttindi til að þjálfa öll helstu námskeið sem Dale Carnegie býður upp á svo sem; grunnnámskeiðið, stjórnendaþjálfun, sölu- og þjónustuþjálfun, þjálfun í kynningum og sérsniðnar lausnir. Hún hefur einnig réttindi sem digital trainer og digital producer.
Hafðu samband
Vinsamlegast kynnið ykkur persónuverndarstefnu okkar.