Öryggismenning
Búum til talsmenn öryggismála
Núll slys er raunhæfur möguleiki ef okkur tekst að skapa trausta öryggismenningu. Til að það gerist þurfum við hóp af fólki sem eru talsmenn öryggismála og fá aðra í lið með sér. Góð samskipti skapa traust, sem aftur er grunnurinn að öryggi. Við þurfum að fremja öryggi.
EÐLISÁVÍSUN
Það er ekki hægt að koma í veg fyrir slys
BREGST VIÐ ÁREITI
Er fólki eðlislægt
Enginn tekur ábyrgð
Kylfa látin ráða kasti
Lítil skuldbinding stjórnenda
Hver er sjálfum sér næstur
Slys „gerast bara“
STJÓRNUN
Hending ræður því hvort það verður slys eða ekki
HÁÐ
Skuldbinding stjórnenda
Skilyrði fyrir því að halda vinnu
Ótti/agi
Stýrt að ofan
Markmiðastýrt
Aukin þjálfun
EINSTAKLINGUR
Öryggi eykst
ÓHÁÐ
Starfsmenn viðurkenna eigin ábyrgð varðandi öryggi sitt.
Þeir sjá virði fyrir sig í því að fylgja öruggu verklagi.
HÓPUR
Engin slys er raunhæfur möguleiki
SAMÁBYRGÐ
Hjálpa öðrum að ná árangri
„Gæti bróður míns“
Samlegðaráhrif
Umhyggja fyrir öðrum
Stolt af fyrirtækinu
Markmið námskeiðsins er að hafa áhrif á viðhorf einstaklinga þannig að þeir sýni frumkvæði í að láta öryggismál sig varða og taki ábyrgð á eigin öryggi og starfsmanna.
Þú færð verkfæri sem hjálpa þér að eiga liprari samskipti í viðkvæmum aðstæðum og að vera meðvituð um hvernig þú getur aðlagað tjáningastíl þinn að ólíkum einstaklingum og þannig haft áhrif á viðhorf annarra til öryggismála.
Enginn einn aðili getur skapað nýja öryggismenningu en þú getur haft veruleg áhrif á aðra sem á endanum verður til þess að bæta menninguna og fækka slysum.
Fyrir hverja
Stjórnendur, öryggisstjóra, gæðastjóra, mannauðsfólk, meðlimi öryggisnefnda og alla þá sem bera hag samstarfsmanna fyrir brjósti.
Námseiningar
Námið gefur 2 alþjóðlegar endurmenntunareiningar (Continuing Education Unit – CEU)
Það sem við förum yfir
Aðferðir til að skapa sálfræðilegt öryggi á vinnustaðinum Samskiptahæfni til að byggja upp traust, heiðarleika og samvinnu Tjáningarhæfni til að ná til annarra og selja hugmyndir með story telling aðferðum Sjálfsmeðvitund til að þekkja og virkja styrkleika þína í að skapa öryggismenningu Tjáskipti sem lágmarka ágreining og árekstra Þjálfaraeiginleika sem hjálpa öðrum að meðtaka endurgjöf Umburðarlyndi til að skilja og vinna með ólíkum einstaklingum
Skipulag
Námskeiðið fer fram á Teams og er með virkri þátttöku í rauntíma en Dale Carnegie hefur þróað online kennsluaðferðir í 15 ár. Námskeiðið er í fjögur skipti, 2,5 klst. í senn, með viku millibili. Hópar geta óskað eftir öðru fyrirkomulagi.
Innifalið
Aðgangur að fræðslukerfinu eVolve og útskrifarskírteini frá Dale Carnegie & Associates.
Verð
175.000 kr.
Ath. Starfsmenntasjóðir styrkja námskeiðið
Næstu námskeið hefjast
Smelltu á Skráning til að sjá allar dagsetningar námskeiðsins.
Kl: 13:00 - 15:30
Kl: 13:00 - 15:30