Einkaþjálfun í faglegri framkomu
Ímynd þín skiptir máli. Það er fátt sem mótar ímynd þína meira en hvernig þú tjáir þig í hópi. Að halda kynningu eða taka þátt í umræðum er eitt af því mest krefjandi sem við gerum og tilfinningar eins og spenna og stress eru eðlilegar. Að æfa sig undir leiðsögn fagfólks getur haft mikil áhrif á niðurstöðuna og gerir umræðuna skemmtilegri fyrir alla.
Tugir stjórnenda, vísindafólks, stjórnmálafólks og annarra leita til Dale Carnegie á hverju ári til að fá sjónarhorn fagfólks á ímynd sína og framkomu. Það er magnað hvað aðeins tvær klukkustundir geta haft mikil áhrif.
- Starfsmannakynningar
- Fjárfestakynningar
- Svara erfiðum spurningum (t.d. í pallborði)
- Tækifærisræður (afmæli, brúðkaup osfrv.)
- Framkoma í fjölmiðlum
- Sölukynningar
- Framkoma á samfélagsmiðlum
Verð 49.900 kr. fyrir 2 klst.